Þorrablót og félagsvist

Þorrablót fór fram í gær, fimmtudaginn 6. febrúar í matsal skólans. Góð mæting var frá nemendum, og stjórnaði Lúðvík samkomunni, sem og fjöldasöng með aðstoð Systu. Talsvert var lagt í skemmtiatriði nemenda, en þeir fluttu grínmyndband sem var gert af myndbandsfélaginu Hnetunni. Bjössi skólastjóri var með spurningakeppni, þar sem svörin voru annað hvort já eða nei. Bríet Guðný sigraði spurningakeppnina eftir harða keppni við Guðrúnu Gísla. Að loknu borðhaldi var …Lestu áfram

Ný önn gengin í garð

Nú er skólinn byrjaður á ný, eftir gott og langt jólafrí. Á þessari önn byrjuðu tíu nýjir nemendur og við bjóðum þá hjartanlega velkomin til okkar. Í desember var mikil vinna í gangi í íþróttahúsinu en þar var verið að setja nýtt gólf. Á þessu gólfi eru merktir fjórir bocciavellir, fjórir badmintonvellir, þrír körfuboltavellir, þrír blakvellir, tveir hraðastigar og einn handboltavöllur. Gólfið er tvílitt, blátt og grátt og er aðalblakvöllurinn …Lestu áfram

Notaleg jólastund – föndur og undirskriftir

Í gær, fimmtudaginn 4. desember, bauð Freydís Anna upp á jólaföndur í matsal skólans. Það er alltaf ánægjulegt að brjóta upp skóladaginn og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín. Allskonar fígúrur urðu til í höndum nemenda og starfsmanna, en sumir létu sér nægja að skreyta piparkökur. Einnig komu nemendur saman þar sem þeir gátu skrifað undir ýmis mál, þar sem brotið er á mannréttindum fólks út um allan heim, en það …Lestu áfram

Þitt nafn bjargar lífi

Í fyrra tókum við þátt í þessu bréfamaraþoni, en við fórum með sigur af hólmi í flokknum „flestar undirskriftir miðað við nemendafjölda“ og fengum við titilinn „Mannréttindaframhaldsskóli ársins 2018“ Að sjálfsögðu munum við taka þátt í ár en málin sem tekin eru fyrir núna eru 10 talsins og snúa öll að mannréttindabrotum gegn ungu fólki á aldrinum 14-25 ára. …Lestu áfram