Birt 26. apríl, 2025

Á kjörsviðsbraut er lögð áhersla á gott almennt nám með sérstaka áherslu á góða þekkingu á sérsviði að eigin vali. Að loknu námi eiga nemendur að hafa góða undirstöðuþekkingu á áðurnefndu sérsviði og vera færir um að nýta sér hana við margvísleg verkefni og til frekara náms.
Hæfniviðmið:
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að …
- að gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni og nýta styrkleika sína
- að takast á við frekara nám á völdu sérsviði
- að nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt
- að beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- að taka þátt í lýðræðislegri umræðu og samstarfi
- að leita raka fyrir skoðunum sínum og setja þær fram á skýran og aðgengilegan hátt
- að beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga og úrvinnslu og túlkun þeirra
- að njóta, nýta og virða félagslegt umhverfi sitt á skynsamlegan hátt
- að tengja námið á brautinni nærumhverfi sínu, hvort heldur er skólans eða í heimabyggð
- að njóta, nýta og virða umhverfi sitt á skynsamlegan hátt
- tengja nám brautinnar nærumhverfi sínu, hvort heldur er skóla eða heimabyggð
Lestu meira um kjörsviðsbraut
Námsbrautarlýsing kjörsviðsbrautar
Hlustaðu á Jón Aðalstein segja frá kjörsviðsbraut Framhaldsskólans á Laugum.

Jón Aðalsteinn ásamt nemendum Framhaldsskólans á Laugum sem eru í hljómsveitinni Rown sem vann titilinn Hljómsveit fólksins á Músíktilraunum 2025,
Þróttó: gamla íþróttahúsið sem var reist 1929, er kvikmyndahús en salurinn var gerður upp af nemendum skólans árið 2005 og er hann notaður við margskonar tilefni, svo sem fundi, fyrirlestra eða tónleika eða skemmtanir.Þróttó er meira en kvikmyndahús. Þar er hægt að halda tónleika eða fyrirlestra enda húsið útbúið með fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Þar halda nemendur stærri fundi og þar fer einnig fram kennsla. Þar er aðstaða fyrir nemendur til að æfa tónlist, leiklist eða hvers konar uppákomur sem þeir vilja ráðast í.