Skólakór Framhaldsskólans á Laugum
Skráning er hafin í skólakór Framhaldsskólans á Laugum sem stofnaður var fyrr á þessu ári. Kórstjórarnir Ásta og Agnes Gísladætur vilja hvetja alla til þess að koma og vera með í fjörinu.
Skráning er hafin í skólakór Framhaldsskólans á Laugum sem stofnaður var fyrr á þessu ári. Kórstjórarnir Ásta og Agnes Gísladætur vilja hvetja alla til þess að koma og vera með í fjörinu.
Benedikt Barðason skólameistari setti Framhaldsskólann á Laugum í 100. sinn í ár á hátíðlegum og ánægjulegum degi í íþróttahúsinu á Laugum sunnudaginn 25. ágúst. Benedikt mun leysa Sigurbjörn skólameistara af í eitt ár á meðan hann er í námsleyfi. Benedikt hefur starfað vel á fjórða áratuginn í Verkmenntaskólanum á Akureyri þar sem hann hefur starfað sem kennari, áfangastjóri og aðstoðarskólameistari. Eygló Sófusdóttir námsráðgjafi er komin í ársleyfi frá skólanum og …Lestu áfram
Skólinn verður settur kl.18:00 sunnudaginn 25. ágúst í íþróttahúsinu á Laugum. Heimavistir opna kl. 13:00 þann sama dag og nemendur sækja lykla og skrifa undir húsaleigusamning á skrifstofu skólans. Sigríður (Sísí) náms- og starfsráðgjafi verður til viðtals á skrifstofu sinni á annarri hæð í Gamla skóla. Til að panta tíma hjá henni sendið þið póst á si.ragual@isis. Jóhanna Eydís brautarstjóri Almennrar brautar verður einnig til viðtals á sinni skrifstofu á …Lestu áfram
Framhaldsskólinn á Laugum brautskráði 34 nýstúdenta laugardaginn 18. maí og hefur hann bara einu sinni áður útskrifað jafnmarga nemendur í einu. Um 400 manns komu á brautskráninguna og þáðu hátíðarkaffi á eftir og voru fjölmargir eldri útskriftarárgangar skólans þar á meðal. Semidúx var Edda Hrönn Hallgrímsdóttir með einkunnina 9,26 og dúx var Arney Dagmar Sigurbjörnsdóttir með hæstu meðaleinkunn í sögu skólans 9,52. Báðar útskrifuðust þær af tveimur brautum, Edda af …Lestu áfram
Brautskráning nýstúdenta fer fram við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Laugum þann 18.maí kl. 14.00. Við bjóðum ykkur öll að gleðjast með okkur og þiggja kaffiveitingar að athöfn lokinni í matsal skólans. Þann sama dag kl. 12:30 í Þróttó fer fram aðalfundur hollvinasamtakanna Vina Laugaskóla. Þar mun afmælisnefnd m.a. kynna hugmyndir vegna 100 ára afmæli skólans fyrsta vetrardag 2025. Verið hjartanlega velkomin.
Morkinskinna blað nemendafélagsins kom út seinasta skóladaginn. Í boði með lestrinum voru kleinuhringir og ísköld kókómjólk. Við þökkum nemendum og starfsfólki skólans fyrir frábæran vetur.
