Þegar nemandi hættir námi við skólann er aðgangi hans eytt, ásamt öllum gögnum (td. Onedrive) og tölvupósti.
Nemendur þurfa því að taka afrit af þeim gögnum sem þeir vilja eiga, áður en aðgöngum er eytt.
Lið Laugaskóla bar í kvöld sigurorð af liði Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í forkeppni Gettu betur sem útvarpað var á Rás 2. Úrslit urðu þannig að Laugaskóli fékk 22 stig en FÍV fékk 16 stig. Glæsilegur árangur hjá okkar krökkum. Dregið verður í næstu umferð næstkomandi miðvikudagskvöld að lokinni fyrstu umferð keppninnar.
Grunnskólanemendur komu á Tónkvíslaræfingu um helgina. Guðjón Jónsson, tónlistarstjóri og hljómsveit sem nemendur skipa stilltu strengi sína með söngvurum. Verkefnastjóri Tónkvíslar, Hanna Sigrún, tók myndina en hægt er að sjá fleiri myndir á fb síðu skólans – Framhaldsskólinn á Laugum
Í dag var mötuneytið í Gamla skóla tekið aftur í notkun eftir miklar endurbætur. Glæsileg aðstaða blasti við starfsfólki og nemendum þegar þau mættu í hádegismat. Í allt haust hafa staðið yfir miklar breytingar og var mötuneytið því starfrækt til bráðabirgða í kjallaranum á Tröllasteini. Kristján kokkur og hans samstarfskonur fluttu sig yfir í Gamla skóla í morgun og buðu m.a. uppá lasagna á þessum tímamótum.
12. maí 2016 kynnti SFR niðurstöður úr könnun sinni um stofnun ársins 11. árið í röð. Að þessu sinni var Framhaldskólinn á Laugum „hástökkvari ársins 2016“ og fór upp um 65 sæti. Valið er byggt á svörum tæplega 8.000 starfsmanna hjá 142 stofnunum. Í könnuninni eru mældir þættir á borð við ánægju og stolt, starfsanda, trúverðugleika stjórnenda, launakjör, sjálfstæði í starfi, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu, ímynd stofnunar og jafnrétti. Á Laugum gáfu …Lestu áfram
Sjónvarpsstöðin N4 birti þann 9. október sl. skemmtilegt og fróðlegt viðtal við Bjarneyju Guðrúnu Jónsdóttur. Bjarney kennir við útibú Framhaldsskólans á Laugum sem staðsett er á Vopnafirði. Viðtalið hefst þegar um ein og hálf mínúta er liðin af þættinum.
Þegar nemandi hættir námi við skólann er aðgangi hans eytt, ásamt öllum gögnum (td. Onedrive) og tölvupósti.
Nemendur þurfa því að taka afrit af þeim gögnum sem þeir vilja eiga, áður en aðgöngum er eytt.
