Í dag stóð yfir grunnskólamót á Laugum þar sem rúmlega 200 nemendur frá Eyjafirði til Vopnafjarðar voru mættir til keppni.
Mótið fór einstaklega vel fram og stóðu bæði nemendur og kennarar vaktina. Hér eru nokkrar myndir frá deginum.
Category: Fréttir og tilkynningar
Námsferð til Vopnafjarðar 19. september 2022
Nemendur í áfanganum „Vesturferðir Íslendinga“ fóru ásamt kennara sínum, Rögnu Heiðbjörtu Ingunnardóttur til Vopnafjarðar í upplýsingaöflun. Ágústa Þorkelsdóttir á Refsstað við Vopnafjörð fræddi nemendur um Vesturferðirnar og lífið á heiðarbýlunum. Veðrið lék við okkur og kennslustund hjá Ágústu var utandyra þar sem nemendur nutu fróðleiks hennar eins og myndir sýna. Þaðan var farið í Kaupvangi á Vopnafirði þar sem Cathy Josephson tók á móti okkur og sýndi okkur Vesturfarasafnið sem …Lestu áfram
Kærleikur frá Laugaskóla
SSNE (Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra) eru að vinna að SAMNOR kynningarefni fyrir framhaldsskóla á Norðurlandi. Þetta er skemmtilegt verkefni og okkur þykir gaman að taka þátt í því. Í gær kom Jón Tómas, tökumaður, frá auglýsingastofunni Eyrarlandi og tók upp efni fyrir Laugaskóla. Nemendur og starfsfólk voru mjög samvinnuþýð í þessu verkefni og meðal annars fóru út og mynduðu stórt hjarta á torginu. SAMNOR samanstendur af Framhaldsskólanum …Lestu áfram
Fyrsta vikan á nýju skólaári
Skólinn var settur sunnudaginn síðastliðinn í Íþróttahúsinu á Laugum. Sama dag opnuðu vistirnar og nýnemar og eldri nemendur streymdu að með búslóðina í eftirdragi. Fyrsta vikan í framhaldsskólanum á Laugum köllum við Brunn og er að venju samkvæmt óhefðbundin kennsla þá vikuna. Á mánudaginn var sett upp þrautabraut á skólalóðinni, þar sem nemendur skemmtu sér við hinar ýmsu þrautir. Á þriðjudaginn fóru nemendur í gönguferð í blíðskaparveðri, þar sem þau …Lestu áfram
Stundatöflulaus skóli!
Náms- og kennsluumhverfi og aðferðir við Framhaldsskólann á Laugum er í stöðugri þróun. Nú á haustönn 2022 verður tekið enn eitt skrefið til framþróunar. Hefðbundnar stundatöflur verða lagðar til hliðar en allir nemendur verða með samfelldan vinnudag og skráðir í vinnustofu tíma allan skóladaginn. Eitt af markmiðum þróunarverkefnisins er að kennsla færist enn frekar í átt að vendikennslu. Áhersla er lögð á að hafa námsefni og leiðbeiningar að sem mestu …Lestu áfram
Skólabyrjun
Image
Nú fer að líða að skólabyrjun en skólinn verður settur kl. 18:00 sunnudaginn 28. ágúst. Heimavistir opna kl. 13:00 þann dag. Við á Laugum eru orðin spennt fyrir að fá okkar gömlu nemendur aftur sem og að kynnast nýjum nemendum. Í þessari viku ættu allir nemendur að fá bréf í tölvupósti með helstu upplýsingum, t.a.m. það sem þeir þurfa að hafa með sér, þvottanúmer, herbergi og herbergisfélagi o.s.frv. Bókalisti mun koma hér inn á heimasíðuna (undir námið) fljótlega þar á eftir. Þar eru bækurnar sem notaðar eru í hverjum áfanga taldar upp undir áfangaheitinu (t.d. DANS2AT05) nema að bækur almennrar brautar eru taldar upp undir Almenn braut. Nemendur og foreldrar geta farið inn á Innu (inna.is) og skráð sig inn með rafrænum skilríkjum til að sjá hvað áfanga þeir eiga að taka núna í haust og útvega sér þá þær bækur sem eru taldar upp undir þeim áföngum á bókalistanum. Ef spurningar vakna má alltaf hringja í 464-6300 eða senda tölvupóst á si.ragual@ragual.
Hlökkum til að sjá ykkur og samstarfsins næsta vetur.
Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson
Skólameistari
