Páskafrí hjá Framhaldsskólanum á Laugum
Nú er páskafríið hafið hjá Framhaldsskólanum á Laugum. Vistirnar opna aftur sunnudaginn 7.apríl og kennsla hefst mánudaginn 8 apríl. Gleðilega páska
Heimavistarskóli í sveit
Nú er páskafríið hafið hjá Framhaldsskólanum á Laugum. Vistirnar opna aftur sunnudaginn 7.apríl og kennsla hefst mánudaginn 8 apríl. Gleðilega páska
Árshátíð nemanda var haldin með pomp og prakt í Ýdölum laugardaginn 9. Mars. Öll umgjörð var hin glæsilegasta, dúkalögð borð, góður matur og frábær skemmtiatriði. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Agnes Lebeaupin tók fyrir nemendafélagið.
Framhaldsskólinn á Laugum skráði sig til leiks í Lífshlaupið 2024 sem fór fram í febrúar. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands með það markmið að hvetja alla landsmenn til að hreyfa sig daglega. Nemendur Laugaskóla tóku þátt í framhaldskólakeppninni sem er fyrir 16 ára og eldri og stóð hún yfir í 2 vikur. Boðið var upp Lesa áfram →
Leikdeild Eflingar býður ykkur hjartanlega velkomin í leikhús á Breiðumýri. Að þessu sinni setja þau upp gamanleikritið Í gegnum tíðina þar sem sögð er saga íslenskrar bændafjölskyldu. Fjölskyldumeðlimir lenda í hinum ýmsu aðstæðum og fléttast fjölmörg lög frá árunum 1950-1980 inn í verkið. Leikstjórn er að þessu sinni í höndum Hildar Kristínar Thorstensen en hún býr í Hörgárdal. Hún hefur Lesa áfram →
Þorramatur af bestu gerð Hið árlega þorrablót Framhaldsskólans á Laugum var haldið fimmtudaginn 25.janúar í matsal skólans. Starfsfólk mötuneytis bauð upp á dýrindis þorramat og Pétur Ingólfsson spilaði undir þegar nemendur og starfsmenn ásamt mökum þeirra sungu saman Laugamannasönginn og Þorraþræl við góðar undirtektir. Félagsvist og spurningaleikur Tíu keppendur tóku síðan þátt í spurningaleik sem Bjössi skólastjóri stóð fyrir og Lesa áfram →
Nú er skólinn byrjaður á ný, eftir langt og gott jólafrí. Við hvetjum alla til að hlusta á okkar skóla keppa í Gettu betur í kvöld, kl. 19:20, í beinu hljóðstreymi á rúv.is þar sem Jón Aðalsteinn, Ísold og Jónatan keppa fyrir hönd skólans. Við óskum þeim góðs gengis í kvöld!
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Heimavistir opna aftur sunnudaginn 7.janúar 2024
Þann 22. nóvember síðastliðinn lauk Framhaldsskólinn á Laugum skrefi þrjú af þeim fimm sem eru hugsuð til að efla umhverfisvitund starfsmanna og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum stofnunarinnar. Verkefnið snýst um að fylgja gátlistum sem eru skipt upp í fimm skref með um tuttugu mismunandi aðgerðum sem stofnanir þurfa að innleiða í sinn rekstur. Aðgerðunum er skipt upp í sjö flokka Lesa áfram →
Mugison snýr aftur eftir 30 ára hlé Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hélt tónleika síðastliðinn þriðjudag í Þróttó, gamla íþróttahúsinu á Laugum. Hann þekkir umhverfið vel á Laugum þar sem hann var eitt sinni nemandi í framhaldsskólanum og voru margir af áhorfendum gamlir skólafélagar og vinir hans. Á milli laga rifjaði hann upp nokkrar af gömlu góðu stundunum Lesa áfram →
Tónkvíslin er árleg söngvakeppni sem haldin hefur verið af Nemendafélagi Framhaldsskólans á Laugum frá árinu 2006. Keppninni er skipt upp í tvo flokka, annars vegar eru það keppendur frá Framhaldsskólanum, og hins vegar keppendur frá grunnskólum næsta nágrennis, allt frá Vaðlaheiði austur að Vopnafirði. Dómnefnd velur þrjú bestu atriðin frá framhaldsskólanum og þrjú bestu atriðin úr hópi grunnskólanna. Allt til ársins Lesa áfram →
Draugasögur á Laugum Skólahald á Laugum hófst árið 1925. Þetta er mjög gamall skóli, og það eru til margar draugasögur sem gerðust hér á Laugum. Á efstu hæð í gamla skóla er vinnustofa sem kallast Sigurðarstofa, þessi vinnustofa var eitt sinn heimavist. Það eru enn svefnherbergi innst inni á þessari vinnustofu, en þau eru ekki í notkun lengur. Ef litið Lesa áfram →
Útskriftarferð Útskriftarhópur Framhaldsskólans á Laugum 2024 fór síðastliðinn október í útskriftarferð til Lloret de Mar. Lloret de Mar er skemmtilegur bær sem er staðsettur á Costa Brava-ströndinni í Katalóníu, norðvestur af Barcelona, á Spáni. Ólíkt öðrum skólum fer útskriftarhópur Laugaskóla í útskriftarferðina sína snemma á þriðja skólaárinu, á meðan aðrir skólar fara í sína ferð eftir útskriftina sjálfa. Í ferðinni Lesa áfram →
Í tilefni hrekkjavökuvikunnar ákváðum við að gera stutta umfjöllun um hrekkjavökuna í Framhaldsskólanum á Laugum. Hrekkjavaka er betur þekkt sem hin ameríska Halloween og er haldin víða um heiminn þann 31. október. Ísland hefur lengi verið undir sterkum áhrifum frá Bandaríkjunum og færist menning frá Bandaríkjunum mikið yfir til Íslands. Síðastliðin ár hafa margir Íslendingar farið að halda uppá hrekkjavöku Lesa áfram →
Í frétt vikunnar var tekið viðtal við systkinin Sigurbjörn Árna Arngrímsson og Freydísi Önnu Arngrímsdóttur, en þau starfa bæði við skólann, Bjössi sem skólameistari og Systa, eins og hún er alltaf kölluð, sem kennari. Þau voru bæði nemendur við skólann og langaði okkur að fræðast um hversu öðruvísi skólinn var á þeim tíma og í dag. Viðtalið við Systu birtist Lesa áfram →
Október er bleikur mánuður og í tilefni þess var haldið upp á bleika daginn miðvikudaginn 11. október. Stelpurnar í skólanum komu með þá hugmynd að mæta í bleikum fötum í skólann og það var vel tekið í það. Eins og sjá má á myndinni fengu nokkrir lánuð bleik föt sem þau klæddust. Bleikur október er tileinkaður baráttunni gegn krabbameinum hjá Lesa áfram →
Nemendur eru alls konar og eiga sér allir ólíkan uppruna og bakgrunn s.s. uppeldi, vini og hvaðan þeir koma. Laugaskóli er sóttur af nemendum hvaðan æfa að á landinu og einnig af nemendum sem eiga uppruna sinn að rekja til útlanda. Í haust eru 100 nemendur í fullu námi hér á staðnum og 116 allt í allt og viljum við Lesa áfram →
Innsýn inn í skólahald og félagslíf í Framhaldsskólanum á Laugum nú og þá. Viðtal við Christine Leu Fregiste, núverandi nemanda á Laugum. Christine hóf skólagöngu sína haustið 2022 og hefur stundað nám núna í tvær annir. Christine líkar námið vel. Henni finnst uppsetning skólakerfisins góð, tengsl við nemendur og kennara eru mjög dýrmæt og telur hún að það skapi Lesa áfram →
Félagslífið á Laugum, fyrsta mánuðinn. Fjórða vika skólans er nú að enda. Félagslífið er að blossa upp og hefur margt gerst núna í byrjun skólans. Í annarri vikunni, 4-8. september, var margt skemmtilegt í boði fyrir nemendur. Sunnudaginn 3. september var haldið spilakvöld þar sem ýmis borðspil voru í boði. Síðan á mánudeginum var slip and slide vatnsrennibraut fyrir utan Lesa áfram →
Nemendur í fjölmiðlafræði fá það skemmtilega verkefni í vetur að fjalla um lífð í skólanum og eru það nemendurnir Edda og Elísabet sem hefja leikinn. Brunnur fyrstu viku Laugaskóla Framhaldsskólinn á Laugum var settur sunnudaginn 27. ágúst. Skólasetning var klukkan 18:00 þann dag, en vistin opnaði klukkan 13:00 fyrir þá nemendur sem eru á vist. Skólinn byrjaði síðan klukkan 09:15 Lesa áfram →
Framhaldsskólinn á Laugum verður settur 27. ágúst kl 18:00 í íþróttahúsi skólans. Heimavistir opna kl 13:00 þann sama dag og nemendur sækja lykla og skrifa undir húsaleigusamning á skrifstofu skólans. Að skólasetningu lokinni verður viðstöddum boðið upp á kvöldverð. Við vekjum athygli á að bókalista haustannar má finna á heimasíðunni. Gleðilegt nýtt skólaár 🙂