Dansæfing

Image

Síðastliðinn fimmtudag breyttu nemendur og starfsmenn skólans út af hefðbundinni dagskrá og skelltu í eina dansæfingu í síðasta tíma fyrir mat. Æfðir voru nokkrir af gömlu dönsunum ásamt hópdönsum og línudansi. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd tóku nemendur og starfsfólk vel á því og skemmtu sér ljómandi vel.

Grunnskólamót á Laugum

Dagana 29. og 30. september stendur Íþróttafræðibraut Framhaldsskólans á Laugum fyrir íþróttamóti í skólanum. Keppendur mótsins eru grunnskólanemar víðsvegar af landinu sem munu takast á í íþróttahúsinu. Keppnin sjálf mun vera í dag, föstudag þar sem keppt verður í hinum ýmsu greinum og munu vafalaust margir bíða spenntir eftir tilkynningu um úrslit keppnarinnar. Um kvöldið fara svangir krakkarnir svo í mat til Kristjáns kokks í Mötuneyti FL þar sem hann …Lestu áfram