Keppni í Hressbikarnum 2018 hélt áfram í vikunni þar sem keppt var í badminton. Aftur var það lið WC Riben sem stóð uppi sem sigurvegari eftir harða baráttu við lið Englanna. Keppt var í einliðaleikjum karla og kvenna og síðan í tvenndarleik. WC Riben hafði sigur í öllum viðureignunum og vann því 3 – 0 sigur. Á næsta þriðjudag verður keppt í bandý og svo endar keppnin í blaki í byrjun desember.
Hressbikarinn 2018 – WC Riben
Image
Keppnin um “Hressbikarinn 2018” hófst í gær á battafótbolta. Um er að ræða stigakeppni liða sem nemendur búa sér til sjálfir og er þemað að þessu sinni B-íþróttir. Næstu 3 þriðjudaga verður keppt í badminton, bandý og blaki þar sem samanlagður árangur í öllum greinum ræður úrslitum.
Í battafótboltanum í gær sigraði liðið WC Riben og náði sér þannig í 10 stig í heildarstigakeppninni.
Næsta keppni er, eins og áður segir, badminton þriðjudaginn 20. nóvember þar sem keppt verður í einliðaleikjum karla og kvenna auk tvenndarleiks.
Gamla laugin fær gólf
Image
Gamla innisundlaugin á Laugum, sú elsta sinnar tegundar á landinu, var byggð 1925 og gegndi mikilvægu hlutverki í nærfellt áttatíu ár þar til árið 2005 að vígð var ný útisundlaug sunnan við íþróttahúsið. Síðan þá hefur gamla innisundlaugin verið notuð sem félagsaðstaða og kennslustofa. Nýlega var ákveðið að smíða gólf í laugina til að auka notkunarmöguleika rýmisins. Á meðfylgjandi mynd sjást þeir bræður Kristján og Sigurður Hlynur Snæbjörnssynir ásamt Jóni Sverri Sigtryggssyni leggja lokahönd á teppalagningu í lauginni gömlu.
Dans og vöfflur
Image
Dagbók kerfisstjóra. Það var ilmur af vöfflum og dansmúsík sem bárust inn á skrifstofu undirritaðs nú rétt í þessu. Hvað var um að vera? Ég hljóð af stað að athuga málið og fljótlega hóp nemenda í vinnustofu dansandi. Þaðan kom músíkin. Þá var næst að finna upptök vöffluilmsins. Leiðin lá inn í eldhús skólans þar sem ég fann Kristján og Siggu í vöfflubakstri. Svona er lífið á Laugum 🙂
Laugaskóli á Íslandsmóti
Image
Laugaskóli tekur þátt í Íslandsmótinu í blaki þennan veturinn. Liðið er skráð í 3. Deild karla þar sem spilaðar eru þrjár umferðir á þremur helgarmótum í vetur. Fyrsta mótið fór fram um síðustu helgi og var mótið haldið á Ólafsfirði. Í liðinu voru að þessu sinni:
Sigurður Jóhannsson, 3. ári
Haukur Sigurjónsson, 2. ári
Árni Fjalar Óskarsson, 1. ári
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson, 10. bekk
ásamt þeim:
Sigurbirni Árna, skólameistara
Hnikari, íþróttakennara
Guðmundi Smára, raungreinakennara
Liðið spilaði fimm leiki á tveim dögum og vannst sigur í þremur af þessum leikjum en tveir töpuðust. Liðið er því í 3. sæti í deildinni að lokinni 1. umferð, en alls eru 6 lið í deildinni.
Næsta umferð verður leikin á Álftanesi í janúar og sú síðasta í Kópavogi um miðjan mars.