Föstudagsfréttir frá Framhaldsskólanum á Laugum

Birt 9. október, 2026

Þá er komið að föstudagsfréttum frá Laugum. 

Mánudagsminning var á sínum stað og þessa vikuna birtum við mynd frá Sigfúsi Ingólfssyni af hljómsveitinni Foxes frá árinu 1966.

Laugadraumurinn byrjaði í þessari viku  hjá nemendum, en um er að ræða áskorunarkeppni á milli vista hér á Laugum sem hermir eftir þáttaröðum á borð við Asíska drauminn. Keppnin byggist á að hver vist safnar stigum út frá áskorunarlista sem er gefinn út fyrir Laugadrauminn. Tvær vistir keppa saman en allir á vistunum mega taka þátt.

Tveir nemendur okkar tóku sig til og fóru í fjögurra klukkutíma göngu. Ævintýri á gönguskóm – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM

Í gær fimmtudaginn 8. október var boðið upp á vöfflukaffi fyrir nemendur og starfsfólk í tilefni af frábærum árangri í fyrsta mætingatímabili skólaársins. Niðurstöður stöðumats og mætingar komu vel út og því er sannarlega ástæða til að fagna.

Vöfflukaffi í tilefni góðs árangurs – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM

Okkar stærsti viðburður þessa vikuna er Samtal á Laugum – Vertu með í mikilvægu samtali um framtíðina – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM

 

 

Gleðilega helgi frá Laugum í Reykjadal.

Fréttaskrif: Sólborg Matthíasdóttir

Deila