Viðtal við formann nemendafélagsins í Vikublaðinu

Birt 9. október, 2026

Sveinn Jörundur Björnsson fór í skemmtilegt viðtal hjá Vikublaðinu. Textinn hér fyrir neðan er brot úr viðtali hjá þeim og mælum við með að lesa viðtalið í heild sinni. 

Hvað vantar upp á í dag þegar kemur að því að hlusta hvert á annað?

,,Ég tel að það sem vanti er spjall. Að fólk hittist og tali saman er að deyja út, sérstaklega hjá yngri kynslóðum. Við þurfum líka að æfa okkur í að hlusta og til þess að hlusta þarf samtal að vera til staðar. Vegna þessa við tölum minna saman í raunheimum þá hlustum við minna sem er sérstaklega sárt þegar einstaklingar sem þora varla að láta heyra í sér tala.

Ég tel að internetið og samfélagsmiðlar séu stærsta ástæða þess að ungt fólk þorir ekki að spjalla íraunheimum og kynnast nýju fólki. Á netinu er auðvelt að gera lítið úr öðrum því þú þarft ekki að líta í augu manneskjunnar sem þú ert að tala um. Lausnin er einfaldlega að átta sig á að samskipti sem gerast í raunheimum eru miklu dýrmætari en þau sem gerast á samfélagsmiðlum.

Ég skora á fólk að tala meiri við kunningja sem og ókunnuga, hrósa þeim eða bjóða góðan daginn. Og muna að hlusta þegar fólk talar. Líka á fólk sem er yngra en þú.“

Hvaða breytingar viltu sjá í kjölfar Samtalsins, segjum eftir eitt ár?

,,Í fyrsta lagi að kynslóðir spjalli meira sín á milli sín. Að kenna okkur hvernig á að tala og hlusta, bæði við fólk sem við þekkjum og fólk sem við þekkjum ekki. Ég vona að verkefnið veki athygli á því hvað samfélagið skortir mikið af nærveru og góðu samtali í raunheimum.

Það er hægt að misskilja svo mikið í netspjalli, þar vantar líkamstjáningu, tóninn í röddinni, augnsamband og allt það sem við notum þegar við erum að tala saman.

Þar geta yngri kynslóðir eflaust lært mikið af eldri kynslóðum en mest af öllu vona ég að þegar við erum ósammála getum við talað saman og hlustað á hvort annað af virðingu, til þess að komast yfir ágreining og finna út hvað það er sem sameinar okkur.“

Lesa má viðtalið í Vikublaðinu hér – Við þurfum að hittast, setjast niður, slaka á og hlusta á hvort annað | Vikublaðið

Deila