Ævintýri á gönguskóm

Birt 7. október, 2026

Með góðum gönguskóm tókst tveimur nemendum að gera venjulegan þriðjudag að eftirminnilegri upplifun. Í gær lögðu þau af stað í gönguferð frá Laugaskóla alla leið að Helluvaði í Mývatnssveit. Gangan tók alls 3 klukkustundir og 56 mínútur. Þegar rökkva tók fengu þau svo sérstök verðlaun fyrir erfiðið, því norðurljósin dönsuðu yfir himninum og lýstu upp kvöldið á einstakan hátt. Ævintýrin eru oft nær en maður heldur.

Deila