Samtal á Laugum – Vertu með í mikilvægu samtali um framtíðina

Birt 8. október, 2026

Laugardaginn 10. október verður landsverkefnið Samtal haldið víðs vegar um landið, meðal annars í Laugaskóla. Markmið verkefnisins er að efla samtal milli kynslóða og skapa vettvang þar sem fólk með ólíkan bakgrunn kemur saman, hlustar hvert á annað og ræðir framtíðina.

Að frumkvæði forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, fer samtalið fram í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Ungt fólk leiðir umræðurnar en allir eru velkomnir til þátttöku, óháð aldri.

Við tökum á móti gestum í Gamla skóla á Laugum kl. 13:30, þar sem boðið verður upp á kaffi og meðlæti áður en dagskráin hefst kl. 14:00.

Skráning og frekari upplýsingar: https://talasaman.is

Við hlökkum til að sjá ykkur á Laugum!

Deila