Vöfflukaffi í tilefni góðs árangurs

Birt 8. október, 2026

Vöfflur í verðlaun

Í dag fimmtudaginn 8. október var boðið upp á vöfflukaffi fyrir nemendur og starfsfólk í tilefni af frábærum árangri í fyrsta mætingatímabili skólaársins. Niðurstöður stöðumats og mætingar komu vel út og því er sannarlega ástæða til að fagna.

Nemendur eiga því góðar vöfflur skilið. 

Í mötuneytinu starfar frábært fólk – hér er mynd af Kristjáni og Dagný. 

Deila