Föstudagsfréttir frá Framhaldsskólanum á Laugum

Birt 18. september, 2026

Þá er komið að föstudagfréttum frá Framhaldsskólanum á Laugum. 

Vikan hefur verið sérstaklega skemmtileg og veðrið gott. 

Haustlitirnir aðeins farnir að láta sjá sig á Laugum

 

Nemendur fengu fræðslu á fimmtudeginum 17. september í Þróttó.

Lífsorðin 14 eru sprottin úr hugarheimi Héðins Unnsteinssonar, sérfræðings í stefnumótun og kunnáttumanns um geðheilbrigði og fyrrum sérfræðings í þeim málum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) og heilbrigðisráðuneytinu.

Í fyrirlestrinum ræddi Héðinn lífsorðin 14 og sögur þeirra ásamt því að velta því fyrir sér hvað skiptir í raun máli. Lífsorðin eru byggð á persónulegri reynslu en rannsóknir staðfesta gildi þeirra.

Héðinn hefur unnið lengi að því að finna leið til að tala um geðheilbrigði án þess að það verði þungt eða fjarlægt. Leið til að opna samtal sem er hlýtt, hreinskilið og mannlegt. Úr því varð fyrirlesturinn Vertu Úlfur – Wargus Esto. Tilbrigði við geðheilbrigði. Fræðsla sem fjallar um innri styrk, samstöðu og þá fallegu staðreynd að við erum öll að gera okkar besta. Héðinn er höfundur bókarinnar „Vertu Úlfur – wargus esto“.


Við kynntum til leiks nýja starfsmenn skólans sjá hlekk á fréttina fyrir neðan myndina. 

Nýir starfsmenn


Við sögðum frá þvi að Sveinn formaður nemendaráðs hafi farið á fund forseta.

Lærði að gera bindishnút í tilefni dagsins – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM


Marion Edda Stefánsdóttir vann kosningu um nýnemafulltrúa skólans og óskum við henni innilega til hamingju með sigurinn.


Miðlunartæknihópur skoðar búnað skólans og tekur upp TikTok.

 

Miðlunartæknihópurinn er farin af stað með ótrúlega skemmtileg TikTok myndbönd sem við mælum með að fylgja.

Hlekkurinn er hér Laugaskóli FL (@laugaskoli) | TikTok


Hjálpsamir drengir að aðstoða húsvörð skólans í vikunni

 

 


Góða helgi frá Laugum í Reykjadal. 


Deila