Mánudagsminning

Birt 21. september, 2026

Á mánudögum bjóðum við ykkur með í ferðalag í gegnum stórbrotna sögu skólans með vel völdum minningarbrotum sem við köllum mánudagsminning.

Við þiggjum einnig myndir á netfangið si.ragual@allos til þess að stækka hjá okkur ljósmyndasafnið.

Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!

Skólahald í byggingunni hófst haustið 1929

Burstirnar tvær á Húsmæðraskólanum á Laugum í Þingeyjarsveit hafa sett svip sinn á skólastaðinn í nærfellt 90 ár. Innandyra er mikið af gömlum munum úr eigu skólans frá því hann starfaði og öll herbergi eru full af menningu og minningum.

Skólahald í byggingunni hófst haustið 1929 og það var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, sem gerði lokateikningu af skólanum. Baráttan um byggingu skólans hafði staðið yfir í mörg ár og þótti þetta mikill áfangi. Skólinn hét þá Húsmæðraskóli Þingeyinga. Skólinn var seinna stækkaður og viðbygging var að nokkru tekin í notkun árin 1948-1949.

Kvenfélagasamband S-Þingeyinga fékk húsið og allt sem í því er til eignar árið 1988, en skólinn var formlega lagður niður árið 1986. Þegar skólinn hætti var yngra húsið lagt undir starfsemi sem nú er Framhaldsskólinn á Laugum.

Fréttaskrif – Sólborg Matthíasdóttir

Deila