Birt 14. september, 2026
Texti frá – Halla Tómasdóttir, forseti Íslands
Í gær var góður dagur í undirbúningi fyrir Samtal 10. október.
Fyrst átti ég gott samtal á Teams við skólameistara og stjórnendur framhaldsskóla um allt land – og svo fylltust Bessastaðir af ungu fólki í sínu fínasta pússi: forystufólki framhaldsskóla- og háskólanema sem ætlar að taka virkan þátt í að móta Samtal um framtíðina.
Það er erfitt að vera ekki bjartsýn eftir svona dag. Þau komu full af hugmyndum, krafti og þakklæti fyrir að fá raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif.
Sveinn Björnsson – nafni fyrsta forseta Íslands – ferðaðist langa leið frá Laugum til að vera með og lærði meira að segja að gera bindishnút í tilefni dagsins. Og mörg komu langt að meðan önnur tóku þátt í gegnum netið.
Kannski lýsir það kraftinum best að einn ungur maður sagði á leiðinni út af Bessastöðum: „Við erum að fara að breyta heiminum.“
Ég hef mikla trú á samtalinu og unga fólkinu og tek undir með einum skólastjóra sem spurði:
“Getum við lært að vera ósammála fallega?” og öðrum sem sagði réttilega:
“Við getum gert betur.”


