Birt 16. september, 2026
Eva Björg Jónsdóttir er nýr þvottastjóri Framhaldsskólans á Laugum. Hún starfaði áður við ræstingar í skólanum en Anna Geirlaug Kjartansdóttir hefur tekið við af henni í ræstingum. Sigurbjörn Már Aðalsteinsson starfaði áður sem húsbóndi en hefur nú tekið við sem stærðfræði- og eðlisfræðikennari. Erna Sif Bjarnadóttir er félagsvísindagreina- og dönskukennari og jafnframt er hún nýr heimavistarstjóri skólans. Arnheiður Rán Almarsdóttir er nýr raungreinakennari. Við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin til starfa.

