Vertu Úlfur

Birt 17. september, 2026

Vertu Úlfur – Lífsorðin 14

Nemendur fengu fræðslu á fimmtudeginum 17. september í Þróttó.

Lífsorðin 14 eru sprottin úr hugarheimi Héðins Unnsteinssonar, sérfræðings í stefnumótun og kunnáttumanns um geðheilbrigði og fyrrum sérfræðings í þeim málum hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) og heilbrigðisráðuneytinu.

Í fyrirlestrinum ræddi Héðinn lífsorðin 14 og sögur þeirra ásamt því að velta því fyrir sér hvað skiptir í raun máli. Lífsorðin eru byggð á persónulegri reynslu en rannsóknir staðfesta gildi þeirra.

Héðinn hefur unnið lengi að því að finna leið til að tala um geðheilbrigði án þess að það verði þungt eða fjarlægt. Leið til að opna samtal sem er hlýtt, hreinskilið og mannlegt. Úr því varð fyrirlesturinn Vertu Úlfur – Wargus Esto. Tilbrigði við geðheilbrigði. Fræðsla sem fjallar um innri styrk, samstöðu og þá fallegu staðreynd að við erum öll að gera okkar besta. Héðinn er höfundur bókarinnar „Vertu Úlfur – wargus esto“.

Deila