Tónkvíslin 25.nóvember 2023

Tónkvíslin er árleg söngvakeppni sem haldin hefur verið af Nemendafélagi Framhaldsskólans á Laugum frá árinu 2006. Keppninni er skipt upp í tvo flokka, annars vegar eru það keppendur frá Framhaldsskólanum, og hins vegar keppendur frá grunnskólum næsta nágrennis, allt frá Vaðlaheiði austur að Vopnafirði. Dómnefnd velur þrjú bestu atriðin frá framhaldsskólanum og þrjú bestu atriðin úr hópi grunnskólanna. Allt til ársins 2016 var Tónkvíslin forkeppni fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna eða þar til …Lestu áfram

Trúir þú á draugasögur ?

Draugasögur á Laugum   Skólahald á Laugum hófst árið 1925. Þetta er mjög gamall skóli, og það eru til margar draugasögur sem gerðust hér á Laugum. Á efstu hæð í gamla skóla er vinnustofa sem kallast Sigurðarstofa, þessi vinnustofa var eitt sinn heimavist. Það eru enn svefnherbergi innst inni á þessari vinnustofu, en þau eru ekki í notkun lengur. Ef litið er undir dýnurnar inn í herbergjunum er hægt að finna …Lestu áfram

Útskriftarferð

Útskriftarferð  Útskriftarhópur Framhaldsskólans á Laugum 2024 fór síðastliðinn október í útskriftarferð til Lloret de Mar. Lloret de Mar er skemmtilegur bær sem er staðsettur á Costa Brava-ströndinni í Katalóníu, norðvestur af Barcelona, á Spáni. Ólíkt öðrum skólum fer útskriftarhópur Laugaskóla í útskriftarferðina sína snemma á þriðja skólaárinu, á meðan aðrir skólar fara í sína ferð eftir útskriftina sjálfa. Í ferðinni voru samtals 30 krakkar, ásamt tveimur starfsmönnum og mökum þeirra. …Lestu áfram

Hrekkjavakan í Framhaldsskólanum á Laugum

Í tilefni hrekkjavökuvikunnar ákváðum við að gera stutta umfjöllun um hrekkjavökuna í Framhaldsskólanum á Laugum. Hrekkjavaka er betur þekkt sem hin ameríska Halloween og er haldin víða um heiminn þann 31. október. Ísland hefur lengi verið undir sterkum áhrifum frá Bandaríkjunum og færist menning frá Bandaríkjunum mikið yfir til Íslands. Síðastliðin ár hafa margir Íslendingar farið að halda uppá hrekkjavöku og þar á meðal er Laugaskóli.   Haldið var upp á …Lestu áfram

Viðtal við Freydísi Önnu Arngrímsdóttur – Systa

Í frétt vikunnar var tekið viðtal við systkinin Sigurbjörn Árna Arngrímsson og Freydísi Önnu Arngrímsdóttur, en þau starfa bæði við skólann, Bjössi sem skólameistari og Systa, eins og hún er alltaf kölluð, sem kennari. Þau voru bæði nemendur við skólann og langaði okkur að fræðast um hversu öðruvísi skólinn var á þeim tíma og í dag. Viðtalið við Systu birtist hér í dag eftir nemandann Söndru Rut Fannarsdóttir. Systa er …Lestu áfram