Litlu jól Framhaldsskólans á Laugum
Það voru brosmildir nemendur sem mættu prúðbúnir á litlu jólin í gær þann 5.desember og áttu þar gleðilega stund saman með starfsfóki skólans í hátiðlega skreyttum matsalnum.
Það voru brosmildir nemendur sem mættu prúðbúnir á litlu jólin í gær þann 5.desember og áttu þar gleðilega stund saman með starfsfóki skólans í hátiðlega skreyttum matsalnum.
Skólakór Framhaldsskólans á Laugum söng fyrir starfsfólk og nemendur í gær þann 2.desember í matsal skólans og stóð sig með mikilli prýði. Ásta Gísladóttir kennari í skólanum sér um skólakórinn ásamt systur sinni Agnesi Gísladóttur sem einnig sér um undirspil á æfingum. Myndir – Sara Rún Sævarsdóttir
Margt var á dagskrá á skemmtilegri samverustund í Framhaldsskólanum á Laugum í dag. Nemendur og starfsfólk mættu margir í jólapeysum og föndruðu saman í matsal skólans ásamt því að taka þátt í laufabrauðsgerð og piparkökuskreytingum. Myndir Díana Sól Jakobsdóttir
Uppfært búið er að finna öll skólaspjöld nema árið 1926 – 1927 við þökkum fyrir afar góðar viðtökur. Skólahald hefur verið samfleytt á Laugum í Reykjadal allt frá árinu 1925 og alveg frá upphafi hafa verið gerð skólaspjöld eða bækur með myndum af nemendum skólans. Við samantekt á skólaspjöldum í eigu skólans kom í ljós að okkur vantar skólaspjöld fyrir sjö ár og óskum við því eftir aðstoð í leit …Lestu áfram
Landssamband ungmennafélaga og Samband íslenskra framhaldsskólanema standa fyrir lýðræðisátakinu #égkýs. Í því felst að efla lýðræðisvitund og hvetja ungt fólk til að kjósa eftir upplýstri ákvörðun. Átakið endar með skuggakosningum í framhaldsskólum landsins. Sjá meira um átakið á Um verkefnið | #égkýs Við í Framhaldsskólanum á Laugum tókum þátt í skuggakosningum þann 21.nóvember 2024.
