Skuggakosningar í Framhaldsskólanum á Laugum 2024

Birt 22. nóvember, 2024

 

Landssamband ungmennafélaga og Samband íslenskra framhaldsskólanema standa fyrir lýðræðisátakinu #égkýs.

Í því felst að efla lýðræðisvitund og hvetja ungt fólk til að kjósa eftir upplýstri ákvörðun.

Átakið endar með  skuggakosningum í framhaldsskólum landsins.

Sjá meira um átakið á Um verkefnið | #égkýs

Við í Framhaldsskólanum á Laugum tókum þátt í skuggakosningum  þann 21.nóvember 2024.

Deila