Bett ráðstefnan í London

Bett ráðstefnan í London er einn stærsti viðburður í heimi þar sem árlega er farið yfir það allra nýjasta í tæknigeiranum. Þangað eru mætt fyrir hönd Framhaldsskólans á Laugum þau Þórunn fjármálastjóri, Olga enskukennari. Hallur áfangastjóri, Kristinn kerfisstjóri og Bensi skólameistari. Við óskum þeim góðs gengis á ráðstefnunni.    

Þemavika í Framhaldsskólanum á Laugum

  Í síðustu var þemavika í Framhaldsskólanum á Laugum. Það var eitt þema á hverju degi; á mánudeginum var svarthvítt þema, á þriðjudeginum var treyju dagur, á miðvikudeginum var allt nema bakpoka dagur/everything but a backpack day, á fimmtudeginum var fancy Friday á fimmtudegi og á föstudeginum var náttfata dagur. Það er hægt að sjá myndbönd frá þessum dögum í gegnum Tik Tok aðgang Framhaldsskólans á Laugum hér Tik Tok Laugaskóla …Lestu áfram

Glænýr áfangi í Framhaldsskólanum á Laugum

Miðlunartækni er glænýr áfangi í Framhaldsskólanum á Laugum. Námsráðgjafi skólans Sigríður Valdimarsdóttir sér um áfangann ásamt ritara skólans Sólborgu Matthíasdóttur og áfangastjóranum Halli Birki Reynissyni. Í Miðlunartækni fá  nemendur meðal annars tækifæri til þess að sjá um samfélagsmiðla skólans og sjá alfarið um að búa til auglýsingar fyrir skólann sem meðal annars birtast á YouTube, Instagram og á Facebook sem kostaðar auglýsingar. Nemendur skipta sér í hópa eftir áhugasviði og …Lestu áfram

Mánudagsminning

Í tilefni þess að skólinn verður hundrað ára í október á þessu ári þá bjóðum við ykkur í ferðalag  í gegnum stórbrotna sögu skólans með vel völdum minningarbrotum sem við köllum mánudagsminning. Við þiggjum einnig myndir á netfangið si.ragual@ragual  til þess að stækka hjá okkur ljósmyndasafnið. Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!