Mánudagsminning

Í tilefni þess að skólinn verður hundrað ára í október á þessu ári þá bjóðum við ykkur í ferðalag  í gegnum stórbrotna sögu skólans með vel völdum minningarbrotum sem við köllum mánudagsminning. Við þiggjum einnig myndir á netfangið si.ragual@ragual til þess að stækka hjá okkur ljósmyndasafnið. Einu sinni Laugamaður, ávallt Laugamaður!  

Sýnum hlýhug

Vinir Laugaskóla safna fyrir styttu Vinir Laugaskóla hafa stefnt að því að safna 10 milljónum króna í „Styttusjóðinn“ vegna 100 ára afmælis skólans.Þau hafa nú þegar náð að safna 56% af þeirri upphæð og eru afar þakklát fyrir góðar viðtökur.Nú skora þau á þá Laugamenn sem ekki hafa lagt þessu skemmtilega verkefni lið að koma nú og vera með. Hægt er að fylgjast með vinum Laugaskóla á facebókarsíðu þeirra hér Vinir Laugaskóla …Lestu áfram

Vikulega viðtalið

Skólahald hefur verið samfleytt á Laugum í Reykjadal allt frá árinu 1925 er Alþýðuskóli Þingeyinga hóf göngu sína. Það er því í október á þessu ári sem Laugaskóli fagnar hundrað ára afmæli sínu og af því tilefni ætlum við að taka vikuleg viðtöl við fyrrum nemendur skólans.  Fjórði viðmælandinn í okkar vikulegu viðtölum við fyrrum nemendur Laugaskóla er Linda Pétursdóttir.  Linda Pétursdóttir stundaði nám við Laugaskóla á árunum 1984 -1986.  …Lestu áfram

Frumsýning hjá Leikdeild Eflingar

Laugardaginn 15. febrúar var frumsýning hjá leikdeild Eflingar, en þau  sýndu  söngleikinn Ólafíu. Söngleikurinn hefur verið sýndur áður, árið 2010 og í ár er 15 ára afmæli söngleiksins. Nemendur skólans taka þátt upp á sviði, bak við tjöldin, í hljómsveit, hár og förðun, og einnig í tækninni. Nú er tilvalið að skella sér í leikhús. Hægt er að fylgjast með sýningarplani á bæði facebook og instagram, einnig eru upplýsingar um …Lestu áfram