Litlu Jólin í Framhaldsskólanum á Laugum 

Litlu jólin haldin hátíðleg í Framhaldsskólanum á Laugum  Þann 11. desember klukkan 18:00 voru haldin eftirminnileg litlu jól í Framhaldsskólanum á Laugum þar sem nemendur og kennarar fylltu matsalinn og skemmtu sér konunglega. Mötuneytið bauð upp á ótrúlega góðan mat þar sem var forréttur, aðalréttur og eftirréttur, flestir fóru svo sannarlega saddir heim. Leikir og skemmtiatriði á vegum skemmtinefndar Helga María forseti nemendafélagsins var veislustjóri og skemmtinefndin setti upp leiki …Lestu áfram

Nemendur og starfsmenn komu saman í Þróttó

Starfsmenn og nemendur komu saman í Þróttó Í gær, þann 10. desember komu nemendur og starfsmenn saman í Þróttó þar sem nemendur, í íslenskuáfanganum um Vesturferðir Íslendinga og vesturíslensku sýndu brot af því helsta sem þau hafa unnið að á þessari önn. Dagskráin hófst á því að nemendur fluttu lagið Saga konunnar eftir Harald Reynisson tónlistarmann. Þar á eftir voru fróðlegir upplestrar. Nemendur gerðu myndband um sorgmædda Íslendinga Nemendur gerðu …Lestu áfram

Nemendur baka sjö laga vínartertu

Þessa önnina hefur verið kenndur áfanginn um Vesturferðir Íslendinga með áherslu á vesturíslensku, þar sem menning og tungumál vestra í Nýja Íslandi er aðalviðfangsefnið. Námið er mjög fjölbreytt og verkefnavinna skapandi. Í nóvember sl. var svo ákveðið að baka vínartertuna, þjóðarrétt Vestur-Íslendinga, í 150 ár, sem fluttust vestur um haf. Ragna sem kennir áfangann og Kristján matreiðslumaður leiðbeindu í því ferli. Eins og áður þegar þessi áfangi hefur verið kenndur, …Lestu áfram

Jólatónlist og heitt kakó

Matsalurinn fylltist af hlátri og jólatónlist Þriðjudaginn 2. desember voru krakkarnir í Laugaskóla komnir í algjört jólaskap. Þau föndruðu alls konar jólasnilld, eins og snjókarla og sumir perluðu litríkar jólaperlur. Það var líka hægt að skreyta piparkökur og skera út laufabrauð, og margir sátu saman við borð og sköpuðu sín eigin jólaverk. Matsalurinn fylltist af hlátri, jólatónlist og góðri stemmningu, og það var ljóst að krakkarnir voru að fara inn …Lestu áfram