Hástökkvarar ársins

Birt 23. janúar, 2017 12. maí 2016 kynnti SFR niðurstöður úr könnun sinni um stofnun ársins 11. árið í röð. Að þessu sinni var Framhaldskólinn á Laugum „hástökkvari ársins 2016“ og fór upp um 65 sæti. Valið er byggt á svörum tæplega 8.000 starfsmanna hjá 142 stofnunum.  Í könnuninni eru mældir þættir á borð við ánægju og stolt, starfsanda, trúverðugleika stjórnenda, launakjör, sjálfstæði í starfi, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu, ímynd stofnunar og …Lestu áfram

Útibú skólans á Vopnafirði

Birt 23. janúar, 2017 Sjónvarpsstöðin N4 birti þann 9. október sl. skemmtilegt og fróðlegt viðtal við Bjarneyju Guðrúnu Jónsdóttur. Bjarney kennir við útibú Framhaldsskólans á Laugum sem staðsett er á Vopnafirði. Viðtalið hefst þegar um ein og hálf mínúta er liðin af þættinum.

Tölvugögnum eytt við námslok

Image

Birt 13. september, 2023

Þegar nemandi hættir námi við skólann er aðgangi hans eytt, ásamt öllum gögnum (td. Onedrive) og tölvupósti.

Nemendur þurfa því að taka afrit af þeim gögnum sem þeir vilja eiga, áður en aðgöngum er eytt.