Um helgina fóru fram sýningar nemendafélagins á Bugsy Malone – Bugsy fullorðinn. Sýningarnar heppnuðust mjög vel og var aðsókn með ágætum. Húsið okkar sem við köllum „Þróttó“ fékk nýlega endurbætur að innan og var aðstaða til sviðslista bætt. Hér má sjá upptöku af lokasýningu Bugsy Malone – Bugsy fullorðinn sem fór fram í gær 2. maí 2021: https://www.youtube.com/watch?v=Vrvx5ebhPGc
Category: Fréttir og tilkynningar
Bugsy Malone – Bugsy fullorðinn
Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum setur upp glæsilega tónlistarsýningu byggða á Bugsy Malone. Leikstjóri: Arnór Benónýsson. Tónlistastjóri: Pétur Ingólfsson. Handrit: Jenný Lára Arnórsdóttir Danshöfundur: Líney Hönnun ljósa og tækni: Eyþór Alexander Hallsson Ljósmyndir: Solla Matt
Íþróttakeppni
Starfsmenn skoruðu á útskriftarnemendur í hörkuspennandi íþróttakeppni sl. föstudag og eru hér nokkrar myndir frá keppninni.
Páskaleyfi
Nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum fara í páskaleyfi að loknum vinnudegi föstudaginn 26. mars. Skólinn og skrifstofur hans verða lokaðar í Dymbilvikunni og fram yfir páska. Kennsla hefst aftur mánudaginn 12. apríl og heimavistir opna aftur sunnudaginn 11. apríl kl. 13:00 leyfi gildandi sóttvarnarreglur það. Nemendur og forráðamenn munu fá tölvupóst með nánari útskýringum og leiðbeiningum þegar ljóst verður hvaða sóttvarnarreglur gilda um skólastarf eftir páska. Alltaf er hægt …Lestu áfram
Nýr áfangi í íslensku vekur athygli
Á haustönn 2020 var kenndur nýr áfangi í íslensku um Vesturferðir Íslendinga með áherslu á vesturíslensku, þar sem menning og tungumál vestra í Nýja Íslandi var aðalviðfangsefnið. Námið var mjög fjölbreytt og verkefnavinna skapandi. Góðum tengslum var komið á milli aðila í Kanada og nemenda hér á Laugum þar sem ýmiss konar efni barst okkur og má þar helst nefna heimsókn í New Iceland Heritage Museum með aðstoð netmiðla og …Lestu áfram
Vorönnin að hefjast
Image
Nú er vorönnin að hefjast, daginn tekur að lengja og við öll full tilhlökkunar að hitta nemendurna á ný.
