This gallery contains 2 photos.
Skólinn er loks að hefjast!
Undirbúningur skólaársins í fullum gangi og allt að verða klárt fyrir veturinn. Nú eiga allir nemendur og forráðamenn að vera búnir að fá sent upplýsingabréf þar sem farið er yfir helstu atriðin fyrir komandi skólaár. Það sem þú þarft að vita: Heimavistir verða opnaðar 28. ágúst klukkan 13:00 og nemendur sækja lykla og skrifa undir húsaleigusamning á skrifstofu skólans. Best er að nemendur séu búnir að koma sér fyrir á …Lestu áfram
Nýstúdentar brautskráðir
Image
Laugardaginn 18. maí voru 24 nýstúdentar brautskráðir frá Framhaldsskólanum á Laugum í frábæru veðri.
Tveir nemendur útskrifuðust af íþróttabraut, þrír af náttúruvísindabraut, átta af félagsvísindabraut og 11 af kjörsviðsbraut af jafnmörgum kjörsviðum sem voru búfræði, menntunarfræði, tónlistarflutningur, náttúrufræði, sjúkraliði, forritun, rafvirkjun, hússtjórn, kvikmyndagerð, stálsmíði og söngur. Leon Ingi Stefánsson útskrifaðist með hæstu einkunn nýstúdenta með einkunnina 8,27 og fékk bókagjöf frá Jarðböðunum við Mývatn. Leon hlaut einnig niðurfellingu skólagjalda í HR haustið 2019 fyrir árangur sinn í raungreinum.
Rúmlega 300 manns voru við athöfnina og settu fjölmennir eldri útskriftarárgangar svip sinn á samkomuna, héldu ræður og færðu skólanum gjafir. Var þar bæði um að ræða eldri gagnfræðinga sem og stúdenta. Að athöfn lokinni var kaffisamsæti í Gamla skóla.
Laugaskóli óskar öllum nýstúdentum til hamingju með áfangann og þakkar öllum sem sóttu hann heim fyrir komuna og hlýhug til skólans.
Páskaferð
Image
Nemendur Framhaldsskólans á Laugum fóru í stutta námsferð um páskanna. Sex nemendur ásamt kennara heimsóttu skóla í norður Frakklandi, Saint Joseph Notre Dame College. Þar var unnið í tvo daga á rannsóknarstofu með DNA og Brönugrasafræ. Síðan var farið í tvo daga í íþróttamiðstöð og tekist á við fjölbreytta dagskrá.
Brautskráning 2019
Image
Ágætu Þingeyingar og velunnarar skólans.
Brautskráning nýstúdenta fer fram við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Laugum laugardaginn 18. maí kl. 14:00.
Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin að gleðjast með okkur og þiggja kaffiveitingar að athöfn lokinni í matsal skólans.
Þennan sama dag fer aðalfundur hollvinasamtakanna Vinir Laugaskóla fram í íþróttahúsinu kl. 17:00. Velunnarar skólans eru hvattir til að mæta á þann fund.