Þorrablót Framhaldsskólans á Laugum

Þorramatur af bestu gerð Hið árlega þorrablót Framhaldsskólans á Laugum var haldið fimmtudaginn 25.janúar í matsal skólans. Starfsfólk mötuneytis bauð upp á dýrindis þorramat og Pétur Ingólfsson spilaði undir þegar nemendur og starfsmenn ásamt mökum þeirra sungu saman Laugamannasönginn og Þorraþræl við góðar undirtektir. Félagsvist og spurningaleikur Tíu keppendur tóku síðan þátt í spurningaleik sem Bjössi skólastjóri stóð fyrir og fyrsta sætið í þeirri keppni hlaut Elísa Hrönn. Kvöldinu lauk …Lestu áfram

Skólahald hefst á ný

Nú er skólinn byrjaður á ný, eftir langt og gott jólafrí.   Við hvetjum alla til að hlusta á okkar skóla keppa í Gettu betur í kvöld, kl. 19:20, í beinu hljóðstreymi á rúv.is þar sem Jón Aðalsteinn, Ísold og Jónatan keppa fyrir hönd skólans.   Við óskum þeim góðs gengis í kvöld!  

Græn skref í Framhaldsskólanum á Laugum

Þann 22. nóvember síðastliðinn lauk Framhaldsskólinn á Laugum skrefi þrjú af þeim fimm sem eru hugsuð til að efla umhverfisvitund starfsmanna og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum stofnunarinnar. Verkefnið snýst um að fylgja gátlistum sem eru skipt upp í fimm skref með um tuttugu mismunandi aðgerðum sem stofnanir þurfa að innleiða í sinn rekstur. Aðgerðunum er skipt upp í sjö flokka sem ná yfir helstu umhverfisþætti í venjulegum skrifstofurekstri eins og …Lestu áfram

Mugison á Laugum

Mugison snýr aftur eftir 30 ára hlé  Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hélt tónleika síðastliðinn þriðjudag í Þróttó, gamla íþróttahúsinu á Laugum. Hann þekkir umhverfið vel á Laugum þar sem hann var eitt sinni nemandi í framhaldsskólanum og voru margir af áhorfendum gamlir skólafélagar og vinir hans. Á milli laga rifjaði hann upp nokkrar af gömlu góðu stundunum sem hann átti hér á Laugum og það leit ekki …Lestu áfram