Brautskráning nýstúdenta fer fram á laugardaginn

Image

Laugardaginn 15. maí kl. 14:00 fer fram brautskráning nýstúdenta við Framhaldsskólann á Laugum.

Vegna samkomutakmarkana geta einungis útskriftarnemar og nánustu aðstandendur verið viðstaddir, en að öðru leiti verður brautskráningin með hefðbundnu sniði. Áhugasamir geta fylgst með streymi frá athöfninni á Facebook síðu skólans www.facebook.com/laugaskoli og hefst streymið rétt fyrir kl. 14.

Sýningar nemendafélagins á Bugsy Malone

Image

Um helgina fóru fram sýningar nemendafélagins á Bugsy Malone – Bugsy fullorðinn. Sýningarnar heppnuðust mjög vel og var aðsókn með ágætum. Húsið okkar sem við köllum „Þróttó“ fékk nýlega endurbætur að innan og var aðstaða til sviðslista bætt. Hér má sjá upptöku af lokasýningu Bugsy Malone – Bugsy fullorðinn sem fór fram í gær 2. maí 2021: https://www.youtube.com/watch?v=Vrvx5ebhPGc

Bugsy Malone – Bugsy fullorðinn

Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum setur upp glæsilega tónlistarsýningu byggða á Bugsy Malone.   Leikstjóri: Arnór Benónýsson. Tónlistastjóri: Pétur Ingólfsson. Handrit: Jenný Lára Arnórsdóttir Danshöfundur: Líney Hönnun ljósa og tækni: Eyþór Alexander Hallsson Ljósmyndir: Solla Matt

Páskaleyfi

Nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum fara í páskaleyfi að loknum vinnudegi föstudaginn 26. mars. Skólinn og skrifstofur hans verða lokaðar í Dymbilvikunni og fram yfir páska. Kennsla hefst aftur mánudaginn 12. apríl og heimavistir opna aftur sunnudaginn 11. apríl kl. 13:00 leyfi gildandi sóttvarnarreglur það. Nemendur og forráðamenn munu fá tölvupóst með nánari útskýringum og leiðbeiningum þegar ljóst verður hvaða sóttvarnarreglur gilda um skólastarf eftir páska. Alltaf er hægt …Lestu áfram