Opið hús Framhaldsskólans á Laugum
Smelltu á myndina til þess að sjá hana stærri
Smelltu á myndina til þess að sjá hana stærri
Páskaleyfi er í skólanum frá 1. apríl til og með 16. apríl. Vistirnar opna aftur sunnudaginn 16.apríl og kennsla hefst mánudaginn 17.apríl. Gleðilega páskahátið
Þann 23.mars fengum við góða gesti í Framhaldsskólann á Laugum þegar leikhópinn Stertabenda kom í heimsókn til okkar og setti upp sýninguna Góðan daginn, faggi. Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur unnin upp úr dagbókum Bjarna Snæbjörnssonar frá yngri árum og fjallar á gamansaman en einlægan hátt um aðkallandi málefni tengd hinseginleika; skömm, öráreiti og drauminn um að tilheyra. Höfundar og aðstandendur sýningarinnar eru hinsegin sviðslistafólk sem öll ólust upp …Lestu áfram
Mín framtíð 2023 Dagana 16.– 18. mars 2023 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, Eygló Sófusdóttir og Olga Hjaltalín verða á staðnum ásamt nokkrum nemendum Framhaldsskólans á Laugum til að kynna starfsemi skólans. Hér má sjá dagskrá og opnunartíma ásamt frekari fræðslu um viðburðinn: https://namogstorf.is/2023/03/09/min-framtid-opnunartimi-og-dagskra/
Það var líf og fjör á laugardagskvöldið þegar Tónkvíslin fór fram fyrir húsfylli í íþróttahúsinu á Laugum. Nemendur sáu til þess að keppnin væri hin allra glæsilegasta og allir keppendur stóðu sig vel og eiga hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu ásamt hljómsveitum kvöldsins. Við óskum sigurvegurum kvöldsins þeim Hrólfi Péturssyni og Alexöndru Hermóðsdóttur innilega til hamingju með vel verðskuldaðan sigur.
