VORU ALLIR HÉR ?

Frumsýnd í Þróttó 25.október næstkomandi á hundrað ára afmæli skólans.  Hér fyrir neðan má sjá dagskrá dagsins sem hefst kl. 13.00 með sýningu heimildarmyndarinnar VORU ALLIR HÉR ? Hátíðardagskrá hefst síðan klukkan. 14.00 í íþróttahúsinu á Laugum.  Verið hjartanlega velkomin heim að Laugum.  Dagskrá á 100 ára afmæli Laugaskóla

Vika í hundrað ára afmæli Laugaskóla

Nemendur Laugaskóla klæddust nýjum bolum sem pantaðir voru í tilefni af hundrað ára afmæli skólans . Það líður senn að hundrað ára afmæli Laugaskóla sem haldið verður þann 25.október næstkomandi.  Við hvetjum alla til þess að mæta og meðal annars sjá heimildarmyndina Voru allir hér ? Sem frumsýnd verður á afmælisdaginn í Þróttó.  Verið hjartanlega velkomin heim að Laugum.

Laugadraumurinn

Laugadraumurinn byrjaði á þriðjudaginn í þessari viku og verður til sunnudags, en um er að ræða áskorunarkeppni á milli vista hér á Laugum sem hermir eftir þáttaröðum á borð við Asíska drauminn. Keppnin byggist á að hver vist safnar stigum út frá áskorunarlista sem er gefinn út fyrir Laugadrauminn. Tvær vistir keppa saman en allir á vistunum mega taka þátt. Laugadraumurinn er haldinn tvisvar sinnum á hverju skólaári. Skemmtanastjórinn og nemendafélagsstjórnin sér um Laugadrauminn. Hér fyrir neðan má sjá hvernig liðin skiptast.   Vistirnar sem eru að keppa  Efri …Lestu áfram