Þetta er upplifun sem enginn vill missa af

Birt 17. september, 2024

Sólrún Brynja Einarsdóttir er formaður nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum. Sólrún Brynja sem kemur úr Keflavík ákvað að prófa eitthvað nýtt og dvelja á heimavist. Það kom henni virkilega á óvart hversu auðvelt það var að kynnast öllum og hve fámennur skólinn er. Hún er búin að virk í félagslífi skólans undanfarin tvö ár og ætlar að gera sitt besta í vetur til þess að efla félagslífið enn meira og þiggur gjarnan nýjar hugmyndir.

Að lokum er Sólrún með skilboð til allra þeirra sem hafa áhuga á námi við skólann.

Takið sénsinn og ekki láta hræðsluna stoppa ykkur að prófa að vera á heimavist.

Þetta er upplifun sem enginn vill missa af.

Deila