Í gegnum tíðina

Birt 1. mars, 2024

Leikdeild Eflingar býður ykkur hjartanlega velkomin í leikhús á Breiðumýri. Að þessu sinni setja þau upp gamanleikritið Í gegnum tíðina þar sem sögð er saga íslenskrar bændafjölskyldu. Fjölskyldumeðlimir lenda í hinum ýmsu aðstæðum og fléttast fjölmörg lög frá árunum 1950-1980 inn í verkið.

Leikstjórn er að þessu sinni í höndum Hildar Kristínar Thorstensen en hún býr í Hörgárdal. Hún hefur víðtæka reynslu á listasviðinu, alþjóðlega en hún lærði m.a. í Finnlandi, Englandi og Frakklandi. Vonandi dugar það til að temja hinn þingeyska lýð!

Tónlistarstjóri er Pétur Ingólfsson en hann hefur alloft verið með puttana við stjórnvölinn hjá leikdeildinni með tónlistina. Honum til aðstoðar er Marika Alavere. Höfundur verksins er Hörður Þór Benónýsson en hann er jafnframt einn leikenda.

Þetta er í annað skiptið sem leikdeildin setur verkið upp en það var fyrst sett upp árið 2012. Verkið var einmitt samið fyrir leikdeildina á sínum tíma og með það í huga að fjölbreyttur hópur ungra og eldri leikenda kæmu saman á sviði. Leikdeildin nýtur góðs af nálægð við Framhaldsskólann á Laugum en fjölmargir hæfileikaríkir nemendur taka einmitt þátt í verkum leikdeildarinnar að þessu sinni ásamt kennara skólans og skólameistara.

Leiknefnd Umf. Eflingar óskar ykkur góðrar skemmtunar og vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Miðapantanir og aðrar upplýsingar eru í síma 618-0847 og moc.liamg@gnilfefmu
 
Deila