Birt 11. apríl, 2018
Á sumardaginn fyrsta þann 19. apríl næstkomandi verður opið hús í íþróttahúsinu á Laugum frá kl. 13:00-16:00. Þar verður ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt í boði fyrir alla aldurshópa.
- Nemendur og starfsfólk FL munu kynna það fjölbreytta starf sem unnið er í skólanum.
- Einnig munu vöruframleiðendur og listamenn úr nærsamfélagi okkar verða með kynningar og sölubása.
- Leikir og þrautir fyrir yngstu kynslóðina verða í boði nemenda FL og lifandi tónlist – skólahljómsveit og söngvarar.
- Gamli húsmæðraskólinn á Laugum verður opinn og gestir leiddir um húsið og Kórinn Sálubót kemur og tekur nokkur lög.
- Nemendur FL verða með hesta og teyma undir þeim sem vilja fara á bak.
- Kaffihúsastemming með vöfflum og tilheyrandi verður í boði Framhaldsskólans.
- Sundlaugin verður opin – frítt fyrir alla.
Sjáumst sem flest og fögnum sumri saman!
Nemendur og starfsfólk Framhaldsskólans á Laugum.