Birt 25. september, 2026
Þá er komið að föstudagsfréttum frá Framhaldsskólanum á Laugum.
Vikan hefur einkennst af blíðskaparveðri og fallegum haustlitum.

Mánudagsminningin var á sínum stað, sjá hér fyrir neðan.

Mánudagsminning – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM
Útskriftarnemar eru að selja sælgæti. Fjáröflun útskriftarnema – FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM
Kristjana okkar sem starfar í ræstingunum átti sextugsafmæli í sumar og af því tilefni var afmælisboð á kaffistofu starfsmanna. Kristjana hefur starfað í skólanum síðan árið 1997, fyrst sem ritari skólans og síðar í ræstingum. Samtals 29 ár í Framhaldsskólanum á Laugum.

Í dag er síðan grunnskólamót haldið hjá okkur í Framhaldsskólanum á Laugum. Á mótið koma alls um tvö hundruð nemendur frá ellefu grunnskólum á svæðinu frá Þelamörk og austur á Vopnafjörð. Við munum segja betur frá mótinu síðar ásamt því að sýna myndir frá mótinu.
Gleðilega helgi frá Laugum í Reykjadal.
