Vel heppnað grunnskólamót á Laugum

Birt 28. september, 2026


Framúrskarandi góð mæting á mótið

Um 240 grunnskólanemendur allt frá Vopnafirði til Hörgársveitar mættu á grunnskólamótið okkar föstudaginn 25. september. Nemendur og starfsfólk skólans héldu utan um dagskrána sem tókst vonum framar.

Fullt hús af orku og gleði á Laugum

Eftir fjör í íþróttahúsinu var boðið upp á hamborgara hjá Kristjáni kokki og bíó ásamt góðu sundlaugapartíi áður en krakkarnir héldu glaðir heim á leið.

Við elskum að fá svona stóran og flottan hóp í heimsókn og vonum að dagurinn hafi verið jafn eftirminnilegur fyrir krakkana og hann var fyrir okkur í Laugaskóla!

Deila