Agnes Nótt Þórðardóttir dúx skólans

Birt 2. júní, 2026

Þann 16. maí síðastliðinn brautskráðust 24 stúdentar af fjórum brautum frá Framhaldsskólanum á Laugum í bíðskaparveðri. Nemendur úr nokkrum eldri útskriftarárgöngum heimsóttu skólann og ávörpuðu nýstúdenta.

Ríkey Perla Arnarsdóttir og Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson útskriftarnemar fluttu tónlistaratriði og svo sungu öll útskriftarefnin undir stjórn Jóns Aðalsteins lag Stebba Jak „Voru allir hér“ sem samið var í tilefni að 100 ára afmæli skólans síðastliðið haust.

Þær Hjördís Sverrisdóttir og Gunnhildur Hinriksdóttir luku störfum við skólann og voru kvaddar með virktum. Eva Björg Jónsdóttir fékk silfurmerki skólans fyrir 20 ára starf við hann og þær Ásta Gísladóttir og Bjarney Guðrún Jónsdóttir bronsmerki skólans fyrir 10 ára starf.

Agnes Nótt Þórðardóttir varð dúx skólans með einkunnina 9,48 en hún útskrifaðist af náttúruvísindabraut. Semidúx varð Ísold  Assa Guðmundsdóttir með einkunnina 9,13 en hún útskrifaðist af tveimur brautum náttúruvísindabraut og íþróttabraut.

Máni Sæmundsson hlaut verðlaun fyrir að vera skólaþegn en hann hefur sýnt af sér mikla þrautseigju og dugnað auk þess að vera jákvæður, hjálpsamur, kurteis og ávallt brosandi. Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson útskrifaðist með 330 einingar af kjörsviðsbraut með kjörsviðið tónlist.

Að venju var dagurinn hátíðlegur og fjölmenni á Laugum og þáðu allir hátíðarkaffi að athöfn lokinni.


Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til þess að sjá fleiri myndir frá brautskráningu.

 

 

Deila