Birt 28. maí, 2026
Þegar fyrrum nemendur Laugaskóla eru spurðir út í skólagöngu sína er nær undantekningarlaust minnst á mötuneytið og þá sem þar starfa eða hafa starfað í gegnum tíðina. Það er því nokkuð vel rökstuddur grunur um að mötuneyti Laugaskóla sé ekkert venjulegt mötuneyti.





Mötuneytið endurnýjað árið 2017
Í mötuneyti skólans starfa fjórir starfsmenn í mismunandi stöðugildum, ásamt Kristjáni Guðmundssyni, yfirmanni mötuneytisins. Áhersla er lögð á að framfylgja stefnu skólans um hollustu, gæði og hreinlæti í matargerð og framreiðslu. Nemendur á heimavist eru í fullu fæði sem samanstendur af fimm máltíðum fimm daga vikunnar. Í boði er einnig sjö daga fæði eða að kaupa stakar máltíðir. Því ætti enginn að finna fyrir hungri í dagsins önn. Starfsmenn skólans geta keypt stakar máltíðir eða skráð sig í fastar máltíðir.








38 ár í eldhúsinu á Laugum og aldrei leiðst einn einasta dag





FRÉTTASKRIF: SÓLBORG MATTHÍASDÓTTIR

