Birt 3. júní, 2026


Tónkvíslin á Laugum
Þar sem hugmyndir verða að veruleika og íþróttahús verður tónlistarhöll!
Tónkvíslin er söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum og einn af stærstu menningarviðburðum á Norðausturlandi. Keppnin hefur verið haldin af Nemendafélagi skólans frá árinu 2006 og er jafnframt forkeppni fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna.
Keppninni er skipt í tvo flokka: annars vegar framhaldsskólanemendur og hins vegar nemendur grunnskóla í nær samfélaginu. Dómnefnd velur bestu atriðin í hvorum flokki, en símakosning ákveður vinsælasta atriðið. Frá árinu 2015 hefur Tónkvíslin verið sýnd í beinni útsendingu, fyrst hjá Bravó og síðar á N4, síðari ár hefur verið boðið upp á netstreymi.
Sigurvegari framhaldsskólaflokksins keppir fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna, þar sem margir þekktir listamenn hafa hafið feril sinn, þar á meðal Birgitta Haukdal.





Stolt og hvatning fyrir framtíðina
Tónkvíslin hlaut styrk úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA fyrir árið 2025!
Við erum einstaklega stolt af þessari flottu viðurkenningu. Hún sýnir hversu dýrmætt verkefni Tónkvíslin er, ekki bara fyrir okkur innan skólans, heldur fyrir menningarlífið allt. Þessi stuðningur hvetur okkur enn meira áfram til að gera hátíðina enn magnaðri á hverju einasta ári.


Framkvæmdarstjórn og skipulag
Undirbúningur Tónkvíslarinnar er umfangsmikill og hefst langt fyrir keppnisdag. Árlega er skipuð framkvæmdarstjórn skipuð nemendum, sem ber ábyrgð á heildarskipulagi og framkvæmd viðburðarins. Stjórnin skipuleggur vinnuhópa og kallar eftir þátttöku nemenda út frá áhugasviði.
Nemendur skrá sig í vinnuhópa og í hverjum þeirra er valinn hópstjóri sem hefur umsjón með verkefnum, tryggir framvindu samkvæmt áætlun og miðlar upplýsingum til framkvæmdarstjórnar.


Helstu vinnuhópar
- Tæknihópur: Styður við upptökur, útsendingar og uppsetningu hljóð- og ljósbúnaðar í samstarfi við fagfólk.
- Smíðahópur: Sér um sviðsuppsetningu og tæknilega framkvæmd.
- Förðunarhópur: Annast förðun keppenda og annarra sem koma fram.
- Umsjónarhópur: Leiðbeinir keppendum sem koma úr grunnskóla.
- Skreytingarhópur: Sér um útlit og merkingar í sal.
- Fjármála- og styrktar hópur: Aflar tekna og styrkja, auk vinninga.
Auk þess reka nemendur veitingasölu á staðnum fyrir gesti.
Allir nemendur skólans taka þátt í undirbúningi og framkvæmd og fá einingar fyrir vinnuframlag sitt. Íþróttahúsi skólans er breytt í fullbúna tónlistarhöll fyrir viðburðinn, og hljómsveit keppninnar er skipuð nemendum sem koma fram bæði á æfingum og á lokakvöldi.
Tónkvíslin er því meira en hefðbundin söngkeppni. Nemendur sjá alfarið um skipulag og framkvæmd frá upphafi til enda og glíma við raunveruleg verkefni sem krefjast skipulagshæfni, samvinnu og lausnamiðaðrar hugsunar.






Allir eru jafn mikilvægir hlekkir í keðjunni


