Vika í hundrað ára afmæli Laugaskóla
Birt 20. október, 2025 Nemendur Laugaskóla klæddust nýjum bolum sem pantaðir voru í tilefni af hundrað ára afmæli skólans . Það líður senn að hundrað ára afmæli Laugaskóla sem haldið verður þann 25.október næstkomandi. Við hvetjum alla til þess að mæta og meðal annars sjá heimildarmyndina Voru allir hér ? Sem frumsýnd verður á afmælisdaginn í Þróttó. Verið hjartanlega velkomin heim að Laugum.
