Category: Fréttir og tilkynningar
Skíðaferð
Miðvikudaginn 8. mars sl. fóru nemendur Framhaldsskólans á Laugum til Akureyrar þar sem ferðinni var heitið upp í Hlíðarfjall. Dagurinn var tekinn snemma og að loknum morgunverði var lagt af stað. Guðmundur Smári Gunnarsson, kennari og María Jónsdóttir, námsráðgjafi voru þeim til halds og trausts í ferðinni. Þau voru einnig myndasmiðir þar sem þau tóku skemmtilegar myndir af nemendum ýmist á fljúgandi ferð, nýdottin eins og vera ber um brekkurnar …Lestu áfram
Heimsókn læknanema „Ástráðsliðar“.
Í seinustu viku litu „Ástráðsliðar“ læknanemar við í framhaldsskólum á Norðurlandi og þar á meðal hjá okkur og héldu fyrirlestur um kynfræðslu. Fyrirlesturinn var vel sóttur af nemendum. Forvarnarstarf þeirra byggir á því að fækka kynsjúkdómum og ótímabærum þungunum. Sjá nánar um forvarnarstarf læknanema á heimasíðu þeirra: http://www.astradur.is/
Bolludagur – sprengidagur – öskudagur
Undanfarnir þrír dagar hafa verið skemmtilegir að venju með tilheyrandi siðum sem fylgja þessum dögum. Bolludagur er fyrsti dagurinn og er alltaf á mánudegi í 7. viku fyrir páska og barst sá siður hingað til lands seint á 19. öld og tengist nafnið „bolludagur“ hinu mikla bolluáti sem á sér stað. Segja má að þar höfum við ekki verið undanskilin þar sem hádegisverður hófst með kjötbollum, kaffimáltið með ógrynni af …Lestu áfram
Afreksþjálfun fyrir nemendur
Nemendum sem stunda keppnisíþróttir stendur til boða að taka áfanga í afreksþjálfun samhliða hefðbundnu námi. Það er áfangi sem býður uppá persónulega þjálfun fyrir keppnisfólk í hvaða íþróttagrein sem er. Þar býðst nemendum að sækja 2 – 3 æfingar í viku hjá íþróttakennara en þær æfingar eru settar inní stundatölfu nemenda þar sem best hentar. Hver og einn nemandi fær æfingaáætlun til að vinna eftir, en hún er sett upp af …Lestu áfram
Skólaheimsókn
Grunnskólanemar frá Bakkafirði, Mývatnssveit, Vopnafiriði og Þingeyjarsskóla dvöldu hér 14. – 15 febrúar sl. í skólaheimsókn. Nemendur komu um kaffileytið á þriðjudeginum og dvöldu fram yfir hádegi næsta dag. Nemendur Framhaldsskólans á Laugum höfðu veg og vanda af því að gera þessa skólaheimsókn áhugaverða og skemmtilega þar sem dvöl þeirra hófst í íþróttahúsinu og eftir kvöldmat var farið í leiki og spilað. Að loknu kvöldkaffi komst á ró og nemendur …Lestu áfram
