Annarlok Framhaldsskólans á Laugum

Morkinskinna blað nemendafélagsins kom út seinasta skóladaginn. Í boði með lestrinum voru kleinuhringir og ísköld kókómjólk.  Við þökkum nemendum og starfsfólki skólans fyrir frábæran vetur.

Mannréttindaskóli ársins 2023

Á hverju ári blæs Íslands­deild Amnesty Internati­onal til herferð­ar­innar Þitt nafn bjargar lífi, sem er alþjóð­legt mann­rétt­inda­átak við að safna undir­skriftum til stuðn­ings tíu einstak­linga eða hópa sem þolað hafa mann­rétt­inda­brot. Fastur liður í herferð­inni er fram­halds­skóla­keppni í undir­skrifta­söfnun, þar sem ungt fólk er hvatt til að beita sér í þágu mann­rétt­inda. Í ár tóku 23 fram­halds­skólar þátt og 6740 undir­skriftir söfn­uðust til stuðn­ings einstak­linga og hópa fyrir Þitt nafn bjargar …Lestu áfram

Góð mæting á opið hús

Opið hús Framhaldsskólans á Laugum gekk vonum framar og mæting var ákaflega góð. Íþróttahúsið var undirlagt af básum og sá Leikfélagið Efling um tónlistaratriði ásamt kór skólans. Við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína á opið hús kærlega fyrir komuna      

Fyrsta Smash Bros Ultimate leikjamót norðurlands

Fyrir tilstilli fyrrverandi nemanda skólans Valdemars Hermannsonar var fyrsta Smash Bros Ultimate leikjamót norðurlands haldið í einni af kennslustofu Framhaldsskólans á Laugum. Mæting var afar góð og spilarar af öllu landinu mættu til að taka þátt, sem og nokkrir sem stunda nám við Framhaldsskólann á Laugum.