34 nýstúdentar frá Framhaldsskólanum á Laugum

Þann 20. maí voru brautskráðir 34 nýstúdentar frá Framhaldsskólanum á Laugum í blíðskaparveðri, en aldrei áður hafa svona margir verið brautskráðir frá skólanum. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson brautskráðist af félagsfræðibraut með hæstu einkunn allra eða 9,35. Bjargey Ingólfsdóttir brautskráðist af íþróttabraut með hæstu einkunn stúlkna 8,09.  …Lestu áfram

Heimavistarskóli í sveit

Framhaldsskólinn á Laugum er öðruvísi framhaldsskóli sem býður upp  á einstaklingsmiðað nám þar sem vel er haldið utan um hvern og einn og námið sniðið að þörfum hvers og eins. Skólinn er lítill heimavistaskóli í sveit með um 100 nemendum sem flestir búa saman á heimavistum skólans. Skólinn býður upp á þrjár meginstúdentsbrautir, náttúruvísindabraut, félagsvísindabraut og íþróttabraut, auk kjörsviðsbrautar þar sem  nemendur geta sett saman stúdentspróf sitt sjálfir. Einnig er …Lestu áfram

Myndir úr skólalífinu

Gallery

Nemendur við verkefnavinnu á bókasafni

Nemendur í vinnustofu

Hólmfríður við undirbúning í eldhúsinu

 

Nemendur í fagtíma í sálfræði

Hinir vinsælu „þriðjudags-hamborgarar“

Hamborgararnir bregðast ekki !

 

Í vinnustofu

Í vinnustofu

Fagtími

Hildigunnur að merkja við í vinnustofu

Nýi matsalurinn

Vinnustofa í Sigurðarstofu

Dýrafræði

Nemendur í dýrafræði krufðu laxfiska mánudaginn 20. mars í verklegum tíma. Fiskarnir voru fengnir frá fiskeldinu á Laxamýri (einn regnbogasilungur og tvær bleikjur) og þökkum við þeim kærlega fyrir það! Fiskarnir voru svo ferskir að greina mátti hjartslætti í þegar búið var að fjarlægja hjörtun úr fiskunum.

„Kynjakvótakvöld“ með Siggu Kling

Nemendafélag skólans hefur undanfarin ár staðið fyrir karla-og konukvöldi en í ár var brugðið á það ráð að fá þekktan skemmtikraft. Þar sem um tvær samkomur hefur verið að ræða þá var ákveðið að gera þetta að einni sameiginlegri kvöldskemmtun sem fékk heitið „kynjakvótakvöld“ þar sem allir nemendur skólans væru samankomnir. Dagskráin í kvöld hófst með pizzuhlaðborði sem nemendur tóku þátt í að undirb úa ásamt starfsfólki mötuneytis. Þegar nemendur …Lestu áfram