Dansæfing

Image

Birt 12. október, 2017

Síðastliðinn fimmtudag breyttu nemendur og starfsmenn skólans út af hefðbundinni dagskrá og skelltu í eina dansæfingu í síðasta tíma fyrir mat. Æfðir voru nokkrir af gömlu dönsunum ásamt hópdönsum og línudansi. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd tóku nemendur og starfsfólk vel á því og skemmtu sér ljómandi vel.

Image

Birt 22. september, 2017

Lífið gengur sinn vanagang við Framhaldsskólann á Laugum. Hauststillur síðustu daga hafa gefið okkur okkur fagra daga og gert okkur kleyft að njóta haustlitanna. Aspir og reynitré á svæðinu hafa breytt um lit á degi hverjum undanfarið. Nemendur eru í óða önn við sitt nám og félagslíf og er það almennt álit að skólabragurinn er með eindæmum góður. (Mynd: kip)

Tölvugögnum eytt við námslok

Image

Birt 13. september, 2023

Þegar nemandi hættir námi við skólann er aðgangi hans eytt, ásamt öllum gögnum (td. Onedrive) og tölvupósti.

Nemendur þurfa því að taka afrit af þeim gögnum sem þeir vilja eiga, áður en aðgöngum er eytt.

Veikindaskráningar

Image

Birt 27. september, 2024

Nemendur 18 ára og yngri

Þegar nemandi yngri en 18 ára er veikur, eiga foreldrar að tilkynna veikindin fyrir kl. 10.00 í tölvupósti á si.ragual@ragual.

Nemendur 18 ára og eldri

Þegar nemandi FL 18 ára og eldri er veikur, á hann sjálfur eða foreldri að tilkynna veikindin fyrir kl. 10.00 á skrifstofu ritara, í tölvupósti á si.ragual@ragual eða við ritara á Teams.

Ekki er tekið við veikindatilkynningum eftir kl. 10.00.
Ekki er hægt að skrá sig veikan part úr degi, t.d. bara fyrir hádegi.

Nemendur geta ekki tilkynnt veikindi fyrir annan nemanda.