Birt 3. desember, 2018
Hér eru nokkrar myndir frá afmælisdeginum okkar, 1. desember sl.
Birt 28. nóvember, 2018
Í hádeginu í gær vígði Eyþór A. Hallsson nýtt rafmagnspíanó sem keypt var fyrir gjafafé frá eldri nemendum Laugaskóla.
Píanóið er staðsett í borðsal og mun nýtast vel á hátíðum skólans.
Vonum við að nemendur eigi eftir að nýta hljóðfærið sem mest, sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Birt 28. nóvember, 2018
Þriðja umferðin í Hressbikarnum 2018 fór fram í gær. Keppt var að þessu sinni í bandý og mættust á ný liðin WC Riben og Englarnir. Bandý er klárlega í miklu uppáhaldi hjá WC Riben því skemmst er frá því að segja að liðið vann öruggan 10 – 0 sigur og er þar með enn með fullt hús stiga í heildarstigakeppninni. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir sigur liðsins þetta árið. Síðasta umferð keppninnar fer fram næsta þriðjudag en þá verður keppt í blaki.
