
Samband íslenskra framhaldsskólanema í heimsókn
Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) sem eru hagsmunasamtök framhaldsskólanema á Íslandi heimsóttu okkur í Framhaldsskólanum á Laugum þann 30. janúar síðastliðinn. Við þökkum þeim kærlega fyrir góða heimsókn. Á myndinni má sjá fulltrúa SÍF með nemendum Framhaldsskólans á Laugum.
