Ekki missa af Tónkvíslinni í kvöld 31.október

Birt 31. október, 2025

Hér er Tónkvíslin í rosalegum undirbúningi og allir orðnir tryllt spenntir fyrir kvöldinu! Tónkvíslin hefst klukkan 19:00, en húsið opnar klukkan 18:00, svo muna að mæta tímalega til að ná góðum sætum og komast í stemninguna strax. 

Það verður magnað kvöld fullt af tónlist, stemningu og gleði – og auðvitað verða skemmtileg atriði á milli sem enginn vill missa af!💃🕺 

Hljómsveitin og söngvararnir eru búin að æfa af krafti – og þetta verður eitt besta Tónkvíslarkvöldið hingað til! 

Sjoppa á staðnum með nammi, gos og eitthvað til að narta í 😋 

Ekki missa af þessu! Komið með góða skapið og vinina – þetta verður kvöld sem þú munt ekki gleyma! 🪩 🎶  

-Ása og Birta 

 

Deila