Birt 30. maí, 2025
Á sumardaginn fyrsta var opið hús í Framhaldsskólanum á Laugum þar sem gestum gafst kostur á að skoða skólann og boðið var upp á ýmislegt skemmtilegt til afþreyingar fyrir bæði börn og fullorðna. Nemendur skólans ásamt starfsfólki sáu um undirbúning og framkvæmd. Eitt af því sem boðið var upp á var fatamarkaður sem nemendur í lýðfræði stóðu fyrir í tengslum við verkefni sem þeir voru að vinna um hraðtísku, endurnýtingu og náttúruvernd. Þar seldu þeir föt frá sjálfum sér auk þess sem margir lögðu þeim lið með því að gefa þeim föt.
Fötin voru seld á mjög vægu verði en engu að síður söfnuðust 66.900.- sem nemendur ákváðu að skyldu renna til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Við erum afar stolt af okkar nemendum fyrir þetta góða framlag til Fjölskylduhjálpar Íslands.