Birt 30. maí, 2025
Árlega fá foreldrar nemenda við Framhaldsskólann á Laugum tækifæri til að segja sína skoðun.
Hér fyrir neðan má sjá setningar sem koma frá foreldrum nemanda við Framhaldsskólann á Laugum.
- Bara mjög þakklát að hafa valið ykkar skóla fyrir barnið mitt
- Allir viljugir til að hjálpa og láta nemendum líða vel. Persónuleg og einstaklingsmiðuð þjónusta. Jákvæðni í samskiptum
- Viðmót starfsfólk og kennara er til fyrirmyndar. Kennslufyrirkomulagið hentar mínum unglingi mjög vel og aðstoð kennara og námsráðgjafa fær toppeinkunn frá mér
- hvað hann er sveigjanlegur fyrir nemendur. Skemmtilega öðruvísi uppsetning á náminu. Heilbrigt námsumhverfi
- Hæfilegt frjàlsræði með passlegum aga.
- Skólaandinn virðist vera góður. Námið og skipulag í kringum það virðist vera frábært. Gott starfsfólk.
- Persónulegt, gott aðgengi að starfsfólki, vingjarnlegt viðmót, skýrar reglur, komið vel til móts við nemendur
- Frábært starfsumhverfi og frábær tenging við allt og alla, ein stór fjölskylda
- Gott starfsfólk og persónulegt viðmót
- Þessi mikla nánd og greinileg væntumþykja allra sem vinna við skólann
- Persónuleg og góð þjónusta. Vel haldið utan um nemendur
- Móralinn virðist góður og metnaður varðandi skólasamfélagið mikið. Starfsfólkið ber hag nemenda fyrir brjósti
- Fyrirmyndarskóli þar sem einstaklingarnir fá að njóta sín í námi sem hæfir þeirra áhuga og getu
- Félagslífið
Við þökkum foreldrum kærlega fyrir.