Mánudagsminning

Birt 23. mars, 2025

Tjörnin er viðfangsefnið þessa vikuna. Það kannast eflaust margir við að hafa smellt mynd af skólanum sem speglast í tjörninni á hinum ýmsu árstímum enda ægifagurt sjónarhorn á að líta.
Fyrsta hús Laugaskóla var reist á melhól sem heitir Skiphóll sem teygði arma sína tvo til suðurs. Á milli þeirra og í skjóli hólsins var hvammur, þar sem tjörnin er nú. Tjörnin, hólmarnir og uppfyllingin í kring er gjörð af mannahöndum. Í Tjörninni var kennt sund í áratugi ásamt því að þar fóru fram íþróttakeppnir. Nemendur hafa skautað og skemmt sér í tjörninni í gegnum árin eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og er þetta staður sem er ómissandi partur af sögu skólans.

 

Deila